Hlaupahópur
Vinir Ibrahims
Hleypur fyrir Minningarsjóður Ibrahim Shah
Samtals Safnað
Markmið
takk fyrir stuðninginn!
Hlaupahópurinn Vinir Ibrahims, ætlar að hlaupa og safna áheitum fyrir Minningarsjóð Ibrahims Shah.
Í hlaupahópnum eru vinir og bekkjarfélagar Ibrahims úr Ísaksskóla og knattspyrnufélaginu Val og fjölskyldur þeirra.
Ibrahim lést í hörmulegu slysi á Ásvöllum þann 30. Október í fyrra, þá aðeins 8 ára gamall. Vinir Ibrahims vilja minnast síns góða vinar með þátttöku í hlaupinu.
Minningarsjóður Ibrahim Shah
Minningarsjóðurinn er stofnaður til minningar um Ibrahim Shah. Ibrahim lést í slysi á Ásvöllum í Hafnarfirðinum þann 30. Október 2023 þegar steypubíll keyrði á hann á leið heim af fótboltaæfingu. Ibrahim fæddist þann 9. janúar í á Landspítalanum í Reykjavík árið 2015. Hann var í Waldorfleikskólanum Sólstöfum, Ísakskóla í 1-3. bekk og í Hraunvallaskóla í fjórða bekk þegar hann lést. Hann spilaði fótbolta í Val 2021-2023 og í Haukum haustið 2023. Ibrahim Shah var 8 ára drengur sem lýsti upp heiminn með nærveru sinni. Hann var ótrúlega flinkur í fótbolta og jákvæð sál og missti aldrei af tækifærum til að segja öllum í kringum sig hvað hann elskaði þau mikið. Hann skyldi eftir sig foreldra, 4 systkyni og stóran hóp af frændfólki og ástvinum. Fjölskyldan hans er enn að læra að lifa með þessum nýja raunveruleika og hefur staðið þétt saman með stórt og fallegt bakland en vill núna að heimurinn fái að kynnast Ibrahim og var því Minningarsjóður Ibrahim Shah stofnaður.
Hlauparar í hópnum
Hákon Hugi Björgvinsson
Arnar Orri Gylfason
Laufey Gylfadóttir
Gylfi Þór Valdimarsson
Steinar Logi Eiríksson
Bríet Eva Steinarsdóttir
Nýir styrkir