Hlauparar
Samtals Safnað
Markmið
takk fyrir stuðninginn!
Ég ætla að hlaupa fyrir Sindra stjúpson minn sem varð fyrir alvarlegum mænuskaða á Landspítalanum fyrir tæpu ári síðan. Sindri er einstök manneskja sem hefur verið hluti af mínu lífi í um sjö ár. Hann hefur gengið í gegnum margt á sinni stuttu ævi, en mætir öllum áskorunum með miklu æðruleysi. Sindri snertir alla sem honum kynnast og sést það ansi vel á öllu því flotta fólki sem ætlar að hlaupa fyrir Sindra þann 24. ágúst.
Ég skora á ykkur öll að heita á mig, margt smátt gerir eitt stórt ❤
Fyrir Sindra- hjálpatækjasjóður Sindra
Hjálpartækjasjóður Sindra var stofnaður fyrir Sindra Pálsson sem er 15 ára og fæddist með heilkennið Warburg Micro Syndrome. Heilkennið veldur sjónskerðingu, einhverfu og lágri vöðvaspennu. Þrátt fyrir sínar takmarkanir þá gat Sindri lifað góðu og innihaldsríku lífi, stundaði nám í Klettaskóla og rúllaði sér út um allar trissur á hjólastólnum sínum. Í lok september 2023 varð Sindri fyrir miklu áfalli þar sem hann varð fyrir mænuskaða og lamaðist fyrir neðan axlir vegna aðgerðar á Landspítalanum. Sindri veiktist alvarlega í kjölfar þessa áfalls og var í 2 mánuði á gjörgæsludeild. Hans bíður nú löng og ströng endurhæfing en ljóst er að lömunin er varanleg. Markmiðið með söfnuninni er að styrkja Sindra í öllu því sem eykur lífsgæði hans og hamingju í lífinu.
Nýir styrkir