Hlauparar
Samtals Safnað
Markmið
takk fyrir stuðninginn!
Ég hleyp fyrir Emblu Rún, Hermann Inga, Írisi Lilju og Bjarka Eyþórsson, framlög renna til Downs félagsins.
Félagið hjálpar börnum og aðstandendum þeirra með allt sem tengist Downs heilkenninu. Félagið býður mikilvæga fræðslu og stuðning ásamt því að gæta réttinda þeirra í opinberu kerfi. Ég áttaði mig á því hvað þetta er mikilvægt starf þegar takmörkuð upplýsingagjöf og aðstoð bauðst fjölskyldu Emblu í gegnum heilbrigðiskerfið, en þá greip Downs félagið utan um þau og veitti mikla hjálp sem annars hefði ekki boðist.
Þann 24. ágúst hleyp ég mitt fyrsta hálf-maraþon fyrir Downs félagið, Emblu Rún og fjölskyldu.
Downs félagið
Tilgangur Félags áhugafólks um Downs heilkenni er að stuðla að velferð og réttindum einstaklinga með Downs-heilkenni og standa að fræðslu til félagsmanna og almennings. Markmið félagsins er að efla tengsl og samkennd milli félagsmanna og vera vettvangur þar sem fjölskyldur og aðstandendur koma saman, miðla af reynslu sinni og hafa gaman! Félagið stendur fyrir ýmsum viðburðum, bæði sjálfstætt og í samvinnu við aðra. Má þar nefna fræðslufundi, ráðstefnur og skemmtanir. Heimasíða félagsins er www.downs.is Allt starf félagsmanna í þágu félagsins er unnið í sjálfboðavinnu.
Nýir styrkir