Runners
Total collected
thank you for your support!
Við mæðgur (allar þrjár) ætlum að hlaupa fyrir Mía Magic góðgerðafélag sem hefur svo sannarlega hjálpað okkur með litla auka verkefnið sem Heiðdís Björk fékk í lífinu.
Míu bangsinn og bækurnar hjálpa ekki bara börnunum, veita huggun og hugrekki heldur hafa langveik börn einnig fengið úthlutað svokölluðu Mía boxi sem gleður lítil hjörtu og léttir lund. Foreldrar langveikra barna geta einnig fengið úthlutað foreldraboxi ❤️
*Mæli með að kíkja á síðuna og sjá allt það fallega sem er í gangi ❤️
https://miamagic.is
Mia Magic
Mia Magic er góðgerðarfélag sem stofnað var 1. febrúar 2021. Mia Magic einbeitir sér að því að gleðja langveik börn og foreldra þeirra ásamt því að gefa út fræðslubækur, bókin Mía fær lyfjabrunn og Mía fer í tívolí, eftir þær Þórunni Evu og Bergrúnu Írisi hafa slegið í gegn og er á döfinni að gefa út fleiri bækur.
New pledges