Runners
Total collected
Goal
thank you for your support!
Ég ætla að hlaupa maraþon til styrktar ABC skólanum í Bobo Dioulasso í Búrkína Fasó. Þar er ólæsi með því hæsta sem gerist í heiminum, fátæktin gríðarleg og fáir sem fá tækifæri til náms. Í þessum ABC skóla eru tæplega 1.200 börn, allt frá 4 ára aldri upp í framhaldsskóla. Mikil uppbygging hefur verið í skólanum frá stofnun árið 2008 og góður árangur nemenda. Nú er verið að stækka framhaldsskólann þar sem yngri nemendum hefur gengið vel og þörf á að koma fleiri nemendum lengra í náminu.
ABC Children’s Aid
ABC barnahjálp er íslenskt hjálparstarf, stofnað árið 1988. Tugþúsundir barna hafa notið góðs af gjafmildi Íslendinga og komist til mennta á þessum 35 árum sem ABC barnahjálp hefur starfað. ABC barnahjálp starfar nú í 6 löndum Asíu og Afríku og styrkir þúsundir barna til náms og búa mörg þeirra á heimavistum. ABC skólarnir veita nemendum frá 3ja ára aldri ókeypis menntun, skólagögn, skólabúning, læknishjálp og mat. Við hjá ABC erum óendanlega þakklát stuðningnum í gegnum 35 ár og þökkum það traust sem okkur hefur verið sýnt. Innilegar þakkir til allra sem vilja styðja við starfið í gegnum Reykjavíkurmaraþonið. Mennt er máttur, enginn annar þáttur er jafn áhrifaríkur í baráttunni gegn fátækt.
New pledges