Hlauparar
Samtals Safnað
Markmið
takk fyrir stuðninginn!
Geðhjálp hefur stutt við geðvernd í landinu og hjálpað fjölmörgum að klást við þá innri áskorun sem geðheilsan hefur skapað fólki. Aðstandendur hafa einnig fengið gríðarmikla og góða aðstoð í gegnum Geðhjálp. Ég ætla að skrölta fyrir Geðhjálp þetta árið því ég á ættingja sem hafa þurft á þeirra þjónustu að halda og ég held að það sé ekkert fráleitt að ég þurfi að ræða við Geðhjálp vegna sjálfs mín einhvern tímann á lífsleiðinni. Hjálpum Geðhjálp!
Geðhjálp
Geðhjálp eru samtök 7.000 félaga, notenda, aðstandenda, fagfólks og áhugafólks um bættan hag fólks sem býr við geðrænar áskoranir í samfélaginu. Samtökin vinna að því að bæta þjónustu, verja réttindi og vinna gegn fordómum með hagsmunagæslu, ráðgjöf, upplýsinga- og þekkingarmiðlun. Gildi Geðhjálpar eru hugrekki, mannvirðing og samhygð.
Nýir styrkir