Hlauparar
Steinþóra Þórisdóttir
Hleypur fyrir Ljósið - Endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda og er liðsmaður í Veritas
Samtals Safnað
Markmið
takk fyrir stuðninginn!
KLUKK ÞÚ ERT'ANN fékk nýja þýðingu í nóvember 2024.
Það er ólýsanleg tilfinning að átta sig á að fótunum hefur verið kippt undan þér.
Það er einnig ólýsanleg tilfinning að finna þegar einhver grípur mann.
Þannig leið mínum manni þegar hann steig fæti inn í Ljósið. Þetta voru ótrúlega erfið skref að stíga en mikið er ég þakklát Ljósinu í dag að hafa haldið vel utan um hann á þann hátt sem ég hafði ekki burði til.
Ljósið hefur einnig reynst mér vel, ég hef getað sótt þjónustu til þeirra sem ég vissi ekki að ég þurfti á að halda. Takk fyrir mig, vonandi get ég hjálpa ykkur með mínu framlagi.
Ljósið - Endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda
Ljósið er sjálfstætt starfandi endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda. Hjá okkur starfar þverfaglegur hópur fagaðila að andlegri, líkamlegri og félagslegri endurhæfingu þeirra sem greinast með krabbamein allt frá 16 ára aldri. Einnig veitum við þeim sem greinast og aðstandendum allt niður í 6 ára aldur fræðslu og stuðning.
Nýir styrkir