Hlauparar
Samtals Safnað
Markmið
takk fyrir stuðninginn!
Ég ætla hlaupa fyrir KAON eða Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis og mömmu <3 en mamma mín greindist með krabbamein núna í vor.
KAON gegnir mikilvægu hlutverki fyrir krabbameinssjúklinga og aðstandendur þeirra. Starf Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis byggist alfarið á stuðningi einstaklinga og fyrirtækja, auk þess sem félaginu er úthlutað styrk úr Velunnarasjóð Krabbameinsfélagsins á ári hverju. Með því að styðja við félagið er hægt að styðja við fólk með krabbamein og aðstandendur í þeirra heimabyggð.
Yrði mjög þakklát fyrir þinn stuðning <3
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis rekur þjónustumiðstöð á Akureyri sem veitir einstaklingum sem hafa greinst með krabbamein og aðstandendum þeirra fræðslu, stuðning og ráðgjöf, þeim að kostnaðarlausu. Í boði eru viðtöl hjá ráðgjafa, stuðningshópar og ýmis gagnleg námskeið. www.kaon.is
Nýir styrkir