Hlauparar
Samtals Safnað
Markmið
takk fyrir stuðninginn!
Við eigum litla hetju sem er fædd árið 2023. Hún er með skarð í vör og góm.
Félagið, Breið bros hefur nú þegar hjálpað okkur alveg ótrúlega mikið og viljum við gefa til baka með því að hlaupa fyrir félagið.
Breið bros
Breið bros, samtök aðstandenda barna með skarð í vör og góm, voru stofnuð í nóvember 1995. Félagsmenn eru foreldrar barna sem fæðast með skarð í vör og/eða góm eða önnur andlitslýti, fagfólk og ýmsir þeir sem hafa áhuga á að leggja málefninu lið. Tilgangur Breiðra brosa er að starfa að hinum ýmsu málefnum barna sem fæðast með skarð í vör og/eða góm eða önnur andlitslýti. Í því felst meðal annars stuðningur við foreldra barna með skarð með öflugu tengslaneti, vinna að fræðslumálum og vinna að hagsmuna- og réttindamálum barnanna.
Nýir styrkir