Hlauparar
Samtals Safnað
takk fyrir stuðninginn!
Ég er móðir tveggja einhverfra barna og hleyp þetta árið 10 km fyrir Einhverfusamtökin. Einhverfusamtökin standa fyrir fræðslu sem við foreldrarnir höfum þurft að nýta okkur. Fræðslan og fræðsluefnið kostar pening að búa til og langar mig að leggja mitt af mörkum með því að hvetja fólk til að heita á mig og safna pening fyrir Einhverfusamtökin.
Einhverfusamtökin
Einhverfusamtökin fta., voru stofnuð 1977. Í samtökunum er fólk á einhverfurófi, foreldrar, fagfólk og aðrir sem áhuga hafa á að beita sér fyrir bættri þjónustu við einhverfa. Félagsmenn eru nú 1030. Starfandi eru frístundahópar fyrir unglinga og stuðningshópar fyrir fullorðna bæði Höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Á höfuðborgarsvæðinu eru einnig starfandi borðspilahópur og handavinnuhópur fyrir fullorðið einhverft fólk. Einnig er starfandi stuðningshópur fyrir foreldra. Samtökin hafa lagt ríka áherslu á hagsmunagæslu, fræðslu- og kynningarstarfsemi. Helstu baráttumálin eru styttri biðlistar eftir greiningu, aukin atvinnutækifæri og fleiri búsetuúrræði. Einhverfusamtökin eru með skrifstofu í Reykjavík.
Nýir styrkir