Hlaupastyrkur

Hlauparar

10 K

Ingólfur G. Steingrímsson

Hleypur fyrir Minningarsjóður Orra Ómarssonar

Samtals Safnað

49.837 kr.
50%

Markmið

100.000 kr.
Söfnuninni er lokið,
takk fyrir stuðninginn!

Ég vill leggja þessu málefni lið þar sem Minningarsjóður Orra er að vinna ótrúlega góða vinnu að þörfu og mikilvægu málefni. Það er okkur fjölskyldunni ofarlega í huga að það sé hugað að vörnum gegn sjálfsvígum.

Markmið sjóðsins er að vinna að sjálfsvígsforvörnum. Tilgangi sínum hyggst sjóðurinn ná með því að stuðla að opinni umræðu um sjálfsvígsforvarnir, sjálfsvíg og sorg eftir sjálfsvíg. Verkefni sjóðsins styðja við markmið hans og tilgang.

Minningarsjóður Orra Ómarssonar

Sjóðurinn var stofnaður til minningar um Orra Ómarsson (f.3.júní 1993 d.30.janúar 2010). Orri lést í sjálfsvígi aðeins 16 ára að aldri. Þegar hann lést var hann við nám í Menntaskólanum í Reykjavík og spilaði knattspyrnu með FH. Markmið sjóðsins er að vinna að sjálfsvígsforvörnum á öllum stigum, opna umræðuna um sjálfsvígsforvarnir, sjálfsvíg og sorg eftir sjálfsvíg. Tilgangi sínum nær sjóðurinn með því að styrkja með fjárframlögum verkefni sem styðja við markmiðin. Meðal verkefna sem Minningarsjóður Orra Ómarssonar hefur styrkt er gerð vefsíðunnar sjalfsvig.is. Sjóðurinn lét þýða og gaf út Þrá eftir frelsi, leiðarvísi fyrir aðstandendur eftir sjálfsvíg (bók og Storytel) og styrkti útgáfu bókarinnar Ástvinamissir (Storytel). Ásamt þessu hefur sjóðurinn styrkt verkefni eins forvarnarmyndina Þögul tár (2021) og gerð bókarinnar Tómið (útgáfa sumar 2021). Sjóðurinn í samvinnu við önnur félög og stofnanir þ.e Rauða krossinn, Pieta samtökin, Geðhjálp, Sorgarmiðstöð, Þróunarmiðstöð heilsugæslunnar, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Landspítala, Þjóðkirkjuna og Embætti landlæknis stendur að vitundarvakningunni "Gulur september." Átakið miðar að því að auka meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna, sé til merkis um kærleika, aðgát og umhyggju. Á Íslandi falla um 40 manns á ári fyrir eigin hendi, á heimsvísu deyja árlega um 800.000 manns í sjálfsvígi. Hvert mannslíf er svo verðmætt og fyrir hvern einn sem við missum á þennan hátt þá sitja eftir tugir einstaklingar sem aldrei verða samir eftir missinn!

Nýir styrkir

Stöðuþráður hlaupara

Aníta
Upphæð2.000 kr.
Þið getið þetta ❤️
Ester Inga Sveinsdóttir
Upphæð2.000 kr.
Engin skilaboð
Eva & Óli
Upphæð3.000 kr.
Run Forest run💪🏻🏃💪🏻
Kristinn Rafn Elísson
Upphæð2.000 kr.
Engin skilaboð
Auður og Bjarni❣️
Upphæð1.000 kr.
Áfram Ingó💘
Ása og Steini
Upphæð2.500 kr.
Svo stolt af þér 🩵
Tómas
Upphæð1.337 kr.
🥃🏃
Stella Steingríms
Upphæð5.000 kr.
Gangi þér vel elsku Ingó minn :-)
Mamma best
Upphæð10.000 kr.
Áfram Ingó, þú ert bestur!
Joshua Kingdon
Upphæð5.000 kr.
Áfram snúðurinn minn King Ingó :)
Kristófer Bachmann
Upphæð5.000 kr.
Frábær maður
Upphæð1.000 kr.
Engin skilaboð
Upphæð5.000 kr.
Áfram þú meistari 👏🏼
Tinna Ýr
Upphæð5.000 kr.
💪❤️

Styrktaraðilar

  • Íslandsbanki
  • Corsa
  • Suzuki
  • ÍTR
  • 66 Norður
  • Gatorade