Hlauparar
Samtals Safnað
Markmið
takk fyrir stuðninginn!
Ég ætla að hlaupa 10 km fyrir Örninn, fyrir pabba minn og hina sem hafa líka misst foreldri.
Ég missti pabba minn árið 2022 og Örninn hefur hjálpað mér mikið með mín sorgina. Margt sem við gerum í Erninum er erfitt en við gerum líka margt mjög skemmtilegt saman og ég hlakka alltaf til að mæta á samkomurnar, hitta vinkonur mínar og alla frábæru sjálfboðaliðana.
Pabbi ég elska þig ❤️
Örninn - Minningar og styrktarsjóður
Örninn styður börn og unglinga á aldrinum 9 til 17 ára sem hafa misst foreldri eða annan náin ástvin. Félagið býður upp á helgardvöl og mánaðarlegar samverur fyrir börn í sorg. Þar vinnum við sorgarúrvinnslu, fáum fræðslu um ýmislegt tengt áföllum og missi ásamt því að hafa gaman saman og njóta lífsins. Samverurnar eru þátttakendum að kostnaðarlausu en verkefnið reiðir sig á styrki auk þess sem allir starfsmenn eru sjálfboðaliðar.
Nýir styrkir