Hlauparar
Samtals Safnað
takk fyrir stuðninginn!
Ég hleyp fyrir Einhverfusamtökin því þau eru hagsmunasamtök sem standa vörð um og berjast fyrir réttindum einhverfra og fjolakyldna þeirra. Þangað er hægt að sækja ráðgjöf og stuðning. Samtökin halda úti fjölbreyttu klúbbastarfi fyrir einhverfa. Einnig sinna Einhverfusamtökin margskonar fræðslu varðandi einhverfu í skólum og fleiri stöðum og ekki vanþörf á. Samtökin hafa svo einnig haldið síðast liðin ár stórglæsilega listsýningu í tengslum við Marglitan mars sem ég hvet fólk til að kynna sér og kíkja við á næsta ári.
Einhverfusamtökin eru aðildarfélag að ÖBÍ og Þroskahjálp en það er mjög mikilvægt.
Ég á hagsmuna að gæta í einhverfa málaflokknum og hvet fólk eindregið til að styrkja hlaupara sem hlaupa fyrir Einhverfusamtökin en þau treysta á styrki sem þessa og félagsgjöld til að halda úti sínu frábæra starfi í þágu einhverfra!
Kærar þakkir!
Einhverfusamtökin
Einhverfusamtökin fta., voru stofnuð 1977. Í samtökunum er fólk á einhverfurófi, foreldrar, fagfólk og aðrir sem áhuga hafa á að beita sér fyrir bættri þjónustu við einhverfa. Félagsmenn eru nú 1030. Starfandi eru frístundahópar fyrir unglinga og stuðningshópar fyrir fullorðna bæði Höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Á höfuðborgarsvæðinu eru einnig starfandi borðspilahópur og handavinnuhópur fyrir fullorðið einhverft fólk. Einnig er starfandi stuðningshópur fyrir foreldra. Samtökin hafa lagt ríka áherslu á hagsmunagæslu, fræðslu- og kynningarstarfsemi. Helstu baráttumálin eru styttri biðlistar eftir greiningu, aukin atvinnutækifæri og fleiri búsetuúrræði. Einhverfusamtökin eru með skrifstofu í Reykjavík.
Nýir styrkir