Hlauparar
Samtals Safnað
Markmið
takk fyrir stuðninginn!
Ég ætla að hlaupa 10km fyrir Parkinsonsamtökin Í Reykjavíkurmaraþoninu í ár. Þeir sem þekkja til þessa illvíga sjúkdóms vita að hann leggst ekki bara á einstaklinginn sem greinist heldur hefur hann áhrif á alla nána aðstandendur. Samtökin veita stuðning til einstaklinga með Parkinson sjúkdóminn, en einnig til maka, fjölskyldu og annara aðstandanda og fyrir það verð ég ævinlega þakklát.
Parkinsonsamtökin
Parkinsonsamtökin og Taktur endurhæfing Parkinsonsamtakanna eru í Lífsgæðasetri St. Jó í Hafnarfirði. Hjá Takti er lögð áhersla á heildræna og samfellda endurhæfingu með sérhæfðri sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun, ráðgjöf, fræðslu og námskeiðum fyrir fólk með parkinson og skylda sjúkdóma ásamt stuðningi við aðstandendur. Endurhæfingin miðar að því að auka líkamlega, andlega og félagslega heilsu og auka lífsgæði fólks með parkinson. Allar nánari upplýsingar má finna á www.parkinson.is.
Nýir styrkir