Hlauparar
Samtals Safnað
Markmið
takk fyrir stuðninginn!
Við söfnum fyrir elsku vinkonu okkar, Katrínu Björku, sem hefur þurft að eiga við endurteknar heilablæðingar síðustu 10 árin. Hana dreymir um að ferðast um á hjóli í náttúrunni og anda að sér fersku lofti og því söfnum við fyrir hjóli fyrir hana og aðstoðarmann sem hún getur verið farþegi í.
Ég hef verið að vinna með Katrínu síðustu 10 mánuði og ég hef ekki hitt jafn sterka, jákvæða og þrjóska konu eins og hana. Það er svo mikilvægt fyrir hana að geta farið út í ferska loftið og notið náttúrunnar.
Mér þætti þá mjög vænt um allan stuðning svo við/hún geti hjólað um í fallegu náttúruperlunni okkar!
Styrktarsjóður Katrínar Bjarkar
Katrín Björk Guðjónsdóttir var 21 árs þegar hún fékk sína fyrstu heilablæðingu. Orsökin var séríslenskur erfðasjúkdómur sem veldur arfgengri heilablæðingu. Endurtekin áföll síðustu ár hafa rænt hana málinu og hreyfigetunni en ótrúlegur baráttuandi Katrínar hefur haldið á lofti á von hennar um að ná bata.
Nýir styrkir