Hlauparar
Samtals Safnað
Markmið
takk fyrir stuðninginn!
Ég ætla að hlaupa 10 km í minningu Jennýjar Lilju sem lést af slysförum aðeins 3 ára gömul árið 2015. Fjölskylda hennar hefur haldið minningu hennar á lofti á svo fallegan hátt með því að safna fyrir þeim aðilum sem voru og eru fyrstir á vettvang í svona slysum. Núna í ár ætla þau að safna áheitum og styrkja Björgunarfélagið Eyvind á Flúðum. Markmiðið er að safna fyrir nýju hjartastuðtæki og hjólabörum sem nýtast við burð utanvega.
Minningarsjóður Jennýjar Lilju
Þann 24 október 2015 lést Jenný Lilja af slysförum aðeins 3 ára gömul. Fjölskylda Jennýjar Lilju stofnuðu minningarsjóð í minningu hennar. Tilgangur sjóðsins er að styrkja einstaklinga sem misst hafa ástvin á barnsaldri, vinahópa/vinnufélaga til að sækja sér fræðslu og einnig viðbragðsaðila til tækjakaupa. Í ár, 2024, ætlum við að safna áheitum og styrkja Björgunarfélagið Eyvind á Flúðum. Við ætlum að safna fyrir nýju hjartastuðtæki og hjólabörum sem nýtast við burð utanvega.
Nýir styrkir