Hlauparar
Samtals Safnað
Markmið
takk fyrir stuðninginn!
Ég stefni á að hlaupa heilt maraþon í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2024. Þetta verður í fyrsta skipti sem ég hleyp maraþon á Íslandi en ég hljóp í NYC maraþoninu 2023. Í tilefni þess hef ég ákveðið að hlaupa til styrktar góðu málefni og safna áheitum fyrir Einhverfusamtökin. Einhverfusamtökin standa mér nærri þar sem elsta barnið mitt er einhverft. Einhverfa barnið mitt er orðið fullorðið í dag og það var okkur foreldrunum ómetanlegt að vita af samtökunum og geta leitað til þeirra þegar einhverfugreining lá fyrir. Fjárframlög til samtakanna eru þeim mjög mikilvæg til að halda úti þeirri góðu starfsemi í þágu einhverfra og aðstandenda þeirra sem þar er unnið.
Einhverfusamtökin
Einhverfusamtökin fta., voru stofnuð 1977. Í samtökunum er fólk á einhverfurófi, foreldrar, fagfólk og aðrir sem áhuga hafa á að beita sér fyrir bættri þjónustu við einhverfa. Félagsmenn eru nú 1030. Starfandi eru frístundahópar fyrir unglinga og stuðningshópar fyrir fullorðna bæði Höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Á höfuðborgarsvæðinu eru einnig starfandi borðspilahópur og handavinnuhópur fyrir fullorðið einhverft fólk. Einnig er starfandi stuðningshópur fyrir foreldra. Samtökin hafa lagt ríka áherslu á hagsmunagæslu, fræðslu- og kynningarstarfsemi. Helstu baráttumálin eru styttri biðlistar eftir greiningu, aukin atvinnutækifæri og fleiri búsetuúrræði. Einhverfusamtökin eru með skrifstofu í Reykjavík.
Nýir styrkir