Hlauparar
Samtals Safnað
Markmið
takk fyrir stuðninginn!
Við mæðgur, mamma, ég og Auður litla höfum ákveðið að skella okkur í Reykjavíkurmaraþonið og þó seint sé viljum við leggja okkar að mörkum og hlaupa/labba þessa 10km fyrir hann Mikka sem er mjög oft í huga mér.
Fyrir þá sem ekki vita þá var Mikael Smári þriggja ára þegar hann greindist með taugahrörnunarsjúkdóminn AT og á seinasta ári greindist hann svo með krabbamein þar sem lyfjameðferðin hefur tekið virkilega mikið á. Það er sannarlega erfitt að skilja hví svona mikið er lagt á suma.
Við erum þakklátar fyrir allar krónur til styrktar þessu verðuga málefni ♥️ Margt smátt og allt það 🥰
Styrktarfélag Mikaels Smára
Mikael Smári er 12 ára sjarmatröll, sem haldin er taugahrörnunar sjúkdómnum ataxia telangiectasia. Sjúkdómurinn leggst meðal annars á tauga- og ónæmiskerfið og leiðir til alvarlegrar færniskerðingar. Í sumarbyrjun í fyrra greindist Mikki einnig með bráðahvítblæði og er því í harðri krabbbameinsmeðferð, ofan í allt hitt. Allt daglegt líf er orðið að áskorun fyrir Mikka, hann er orðin mjög háður ýmsum hjálpartækjum. Lífaldurinn er ekki hár hjá þeim börnum sem greinast með sjúkdóminn og skiptir mestu máli núna að búa honum sem best líf, búa til minningar og leyfa honum að njóta sín. Sjóðurinn hefur stutt við fjölskyldu Mikka með greiðslum af hjólastólabíl sem þau hafa til umráða fyrir hann, styrki fyrir ferðalög og annan kostnað sem þarf að leggja út fyrir vegna þeirra hamla sem þau standa frammi fyrir. Við hvetjum hlaupara og aðra stuðningsmenn til að nota myllumerkið #fyrirmikka og #mikkavinafélagið á samfélagsmiðlum :)
Nýir styrkir