Hlaupahópur
Hlaupahópur Péturs Sig
Hleypur fyrir Von, félag til styrktar skjólstæðingum gjörgæsludeildar LSH í Fossvogi
Samtals Safnað
Markmið
takk fyrir stuðninginn!
Pétur Sigurðsson lést þann 23. júní síðastliðinn. Hann hafði þá háð hetjulega baráttu á gjörgæsludeild Landsspítalans í Fossvogi í 11 daga eftir alvarlegt vinnuslys.
Engin orð taka í raun utan um það starf sem fram fer á gjörgæsludeildinni. Pétur okkar var hetjan í þessu stóra verkefni en það fólk sem hjálpaði honum í því eru magnaðar manneskjur.
Við fjölskylda Péturs óskum engum þess að kynnast starfi gjörgæslunnar en á sama tíma erum við svo auðmjúk og þakklát. Þarna starfar fólk sem á til mestu manngæskuna, vinnur óeigingjörn verk sín af einstakri yfirvegun og fagmennsku. Hjá þeim svífur yfir andi kærleikans í garð allra sem þar koma sem sjúklingar og okkar ástvina þeirra. Hjá þeim er kærleikurinn dýpri en hafið og hærri en himininn.
Við sem stóðum álengdar og fylgdumst með trúum á hið góða og finnum fyrir svo djúpu og innilegu þakklæti í garð þessa einstaka fólks.
Við viljum heiðra minningu Péturs okkar, dásamlegs eiginmanns, föður, afa og vinar með því að hlaupa í hans nafni. Allir hlauparar hópsins hlaupa fyrir Styrktarfélagið Von, sem er félag til styrktar skjólstæðinga gjörgæsludeildar LSH í Fossvogi.
Von, félag til styrktar skjólstæðingum gjörgæsludeildar LSH í Fossvogi
Von, félag til styrktar skjólstæðingum gjörgæsludeildar LSH í Fossvogi vinnur fyrst og fremst að því að bæta aðstöðu skjólstæðinga okkar og gera þeim kleift að vera í sem bestu mögulega umhverfi á þeirra erfiðu stundum. Við höfum m.a. endurnýjað húsgögn, svefnaðstöðu, sjónvörp, útvörp, tölvu, aðstöðu til að neyta matar svo dæmi séu tekin. Einnig veitum við styrki til skjólstæðinga okkar sem oft hafa átt við alvarleg veikinda að etja.
Hlauparar í hópnum
Margrét Þorvaldsdóttir
Anna Sólveig Smáradóttir
Símon Hreinsson
Björk Elva Jónasdóttir
Guðmundur Stefán Kjartansson
Ragnhildur Jónasdóttir
Ágústa Rósa Andrésdóttir
Hörður Svavarsson
Finnbogi Kristjánsson
Gunnar Haukur Kristinsson
Nýir styrkir