Hlauparar
Samtals Safnað
takk fyrir stuðninginn!
Við fjölskyldan ætlum eins og síðustu ár, að hlaupa fyrir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna (SKB). Félagið hefur reynst okkur einstaklega vel, frá því að Júlía Rut greindist með bráða hvítblæði og þurfi að fara í langa og erfiða krabbameinsmeðferð í 2 og ½ ár. Hugur okkar er hjá börnunum sem greinast ár hvert. Ekki síst er hugur okkar hjá börnunum sem lifa baráttuna ekki af og fjölskyldur þeirra.
Endilega heitið á okkur
Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna
Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna var stofnað 1991 af foreldrum barna með krabbamein en árlega greinast 12-14 börn með krabbamein á Íslandi. Tilgangur félagsins er að styðja krabbameinssjúk börn og aðstandendur og gæta hagsmuna þeirra á öllum sviðum. Það sinnir fræðslu- og útgáfustarfsemi um sérstöðu og þarfir krabbameinsveikra barna og um síðbúnar afleiðingar eftir krabbameinsmeðferð.
Nýir styrkir