Hlauparar
Herdís Elísabet Kristinsdóttir
Hleypur fyrir Alzheimersamtökin og er liðsmaður í Í minningu Sigurbergs Sigsteinssonar
Samtals Safnað
Markmið
takk fyrir stuðninginn!
Við stórfjölskyldan ætlum að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu 24.ágúst n.k. og safna áheitum fyrir Alzheimersamtökin.
Málefnið stendur okkur nærri því elsku móðurbróðir minn, Sigurbergur Sigsteinsson, greindist með Alzheimersjúkdóminn 65 ára og lést 6 árum síðar. Hann var fyrrum íþróttakennari, þjálfari og landliðsmaður bæði í handbolta og fótbolta.
Þörf er á frekari rannsóknum á orsökum heilabilunar en við viljum halda á lofti sögunni hans elsku Sigurbergs og umræðunni um tengsl á milli höfuðáverka í snertiíþróttum og heilabilunar. Hvort sem um er að ræða heilahristing eða mörg væg höfuðhögg. Sigurbergur tók all nokkra skallaboltana og bar nafn með rentu þegar kallaður Gullskalli. Hvort sem það var orsökin hjá Sigurbergi er ekki vitað með vissu en nýlegar rannsóknir hafa rennt stoðum undir þessi tengsl.
Sem betur fer hefur leikurinn eitthvað breyst. Boltinn sjálfur er léttari í dag heldur en gömlu þungu leðurboltarnir. Einnig er minna um langar sendingar og meira um að markmenn kasti frekar út bolta eða sparki stutt til næsta leikmanns. Þá hefur KSÍ - Knattspyrnusamband Íslands lagt áherslu á fræðslu á sínum námskeiðum um þessi mál. Einnig eru sum félög farin að taka út skallaæfingar hjá ungum iðkendum.
Við viljum undirstrika mikilvægi þess að halda þessari umræðu opinni, um tengsl höfuðáverka í snertiíþróttum og heilabilunar.
Í minningu Sigurbergs okkar reimum við á okkur hlaupaskóna og söfnum áheitum fyrir Alzheimersamtökin og þeirra mikilvæga starf en hlaupið er ein stærsta einstaka tekjulind samtakanna. Margt smátt gerir eitt stórt!
Til að hjálpa okkur að styðja samtökin er hægt að heita á hópinn hér:
Alzheimersamtökin
Munum leiðina.... Ætlar þú að hlaupa í Reykjavíkur maraþoninu? Við höfum fengið ómetanlegan styrk í gegnum árin frá hlaupurum á öllum aldri. Þú getur styrkt okkur með þínu hlaupi í ágúst. Munum leiðina...
Nýir styrkir