Hlaupastyrkur
Hlauparar
10 K
Sylvía Rún Hálfdanardóttir
Hleypur fyrir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna og er liðsmaður í Team Abra
Samtals Safnað
19.000 kr.
95%
Markmið
20.000 kr.
Söfnuninni er lokið,
takk fyrir stuðninginn!
takk fyrir stuðninginn!
1/3
Annað árið í röð ætlar Team Abra að hlaupa fyrir SKB, (styrktarfélag krabbameinssjúkra barna). Í þetta skipti mun öll fjölskyldan (líka Kristján Leó sjálfur með hjálp frá aðstandendum og hjólastól á kantinum ef á þarf) hlaupa og vonandi bætast fleiri fjölskyldumeðlimir og vinir við🥰
2023 - 2024 hefur verið mjög erfitt ár fyrir fjölskylduna og þá sérstaklega fyrir Kristján Leó, sonur systur minnar. Hann fékk stórt aukaverkefni í hendurnar í lífinu, illkynja heilakrabbamein að nafni Medulloblastoma. Eftir bráða lífshættulega og lífsbjargandi heilaskurðaðgerð febrúar 2023, geislameðferð á heila og mænu ásamt krabbameinslyfjameðferð sem lauk 7. mars 2024 þá fékk hann gott svar eftir segulómun á heila í apríl. Flottar myndir og núna byrjar eftirfylgni með segulómmyndatöku af heila reglulega næstu 5 árin og áframhaldandi eftirfylgni með ýmsum hætti út lífið, t.d vegna aukaverkana af krabbameinsmeðferðinni (geislum og lyfjameðferð). Hæsta áhætta á endurkomu krabbameinsins er fyrstu 2 árin. Við vonum það besta og höldum áfram að vera í núinu og venjast nýju lífi og að komast til baka í hversdagsleikann.
Lífið er núna!🩷
Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna
Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna var stofnað 1991 af foreldrum barna með krabbamein en árlega greinast 12-14 börn með krabbamein á Íslandi. Tilgangur félagsins er að styðja krabbameinssjúk börn og aðstandendur og gæta hagsmuna þeirra á öllum sviðum. Það sinnir fræðslu- og útgáfustarfsemi um sérstöðu og þarfir krabbameinsveikra barna og um síðbúnar afleiðingar eftir krabbameinsmeðferð.
Nýir styrkir
Stöðuþráður hlaupara
Upphæð5.000 kr.
Elfa Ýr
Upphæð5.000 kr.
Kristín Lovísa
Upphæð1.000 kr.
Upphæð2.000 kr.
Theodóra Björk Heimisdóttir
Upphæð5.000 kr.
Hólmfríður Rut Gísladóttir
Upphæð1.000 kr.